Monday, September 10, 2012

engar áhyggjur - skólarútínan er alveg komin í lag. 
þetta get ég sagt með 100% vissu af því að sjónvarpið er farið að spila meiri sess í lífi mínu en það ætti að gera og er það meðvituð ákvörðun sem ég tek til þess að eyða sem minnstum tíma í lærdóm. basic!

í dag horfði ég á fyrsta þáttinn af þessari nýju seríu og varð ekki fyrir vonbrigðum. ben&kate og eitt stykki sjúklega krúttlegt barn í veseni og látum. mæli með því að þið skoðið þetta.
svo ég læri nú örugglega lítið á morgun líka þá er ég að fara í smá bæjarsnatt. aðalverkefnið er að ná í jón í lit. það er þessi fína síðbúna afmælisgjöf (ég er ömurleg kærasta og skilaði gjöfinni (helmingnum) frá sjonna og fékk mér svona í staðin) sem fer beint á myndaveginn. voða voða fínt.

2 comments:

  1. Hvað kostar svona Jón?

    ReplyDelete
    Replies
    1. mig minnir að hann hafi verið á 5990. eða eitthvað svoleiðis.
      þær sérpöntuðu fyrir mig litinn - það er hægt að velja á milli svona trilljón mismunandi. ótrúlega fínt.

      Delete