Wednesday, April 18, 2012

ég er ekki lengur í vorskapi, þó að veðrið sé eins og vítamínbomba.
nú finnst mér sólin aðalallega bara þvælast fyrir, þar sem ég sit inni og geri greinargerð. ég er að grillast og er komin úr nánast öllum fötunum, en samt vil ég ekki færa mig á annan stað í íbúðinni því eins og gefur að skilja vil ég ekki missa af sólinni. svo er ég líka að reyna að líta á björtu hliðar lífsins þessa dagana og hvað er bjartara en sólin?
svolítið haltu mér, slepptu mér samband sem við eigum?



annars mæli ég ekki með því að þið talið við mig ef við mætumst á förnum vegi. 
ég er ógeðslega úrill og fúl þessa dagana. 
en þetta verður í lagi svona sirka í júlí.

1 comment:

  1. ææ eg ætlaði að gera hjarta handa þer en eg finn það ekki i þessari tölvu. goð saga. hugsaðu bara einsog eg babycake: BRAÐUM KEMUR BETRI TIÐ MEÐ BLOM I HAGA. hlakka til að hitta þig a morgun, getum verið bitrar saman (grey IV og OS)

    ReplyDelete